Hazard svaraði fyrir líkamsþyngd sína á blaðamannafundi

Eden Hazard á blaðamannafundi belgíska liðsins.
Eden Hazard á blaðamannafundi belgíska liðsins. AFP/Jack Guez

Eden Hazard, hefur eins og fleiri leikmenn Belgíu, legið undir gagnrýni fyrir spilamennsku sína á heimsmeistaramóti karla í fótbolta í Katar.

Á blaðamannafundi belgíska liðsins tók þó steininn úr þegar egypskur blaðamaður setti út á þyngd leikmannsins. Hazard svaraði spurningu Egyptans af fádæma yfirvegun en myndband af atvikinu er þó nokkuð spaugilegt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert