Þannig getum við unnið titilinn

Casemiro fagnar sigurmarkinu gegn Sviss í gær.
Casemiro fagnar sigurmarkinu gegn Sviss í gær. AFP/Nelson Almeida

„Ég skoraði en það var mikilvægast að hjálpa liðinu. Við vinnum saman og við töpum saman – sem lið,“ sagði brasilíski miðjumaðurinn öflugi, Casemiro, í viðtali eftir leik Brasilíu og Sviss á heimsmeistaramóti karla í fótbolta, en hann skoraði eina mark leiksins þegar sjö mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma og tryggði farseðil Brasilíu í 16-liða úrslitin.

„Við erum hópur. Leikmenn liðsins þurfa að leika sem lið. Þannig getum við unnið titilinn.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert