Nýtt met hjá Neuer

Manuel Neuer er klár í slaginn í kvöld.
Manuel Neuer er klár í slaginn í kvöld. AFP/Ina Fassbender

Markvörðurinn reyndi Manuel Neuer ver mark Þjóðverja að vanda þegar þeir mæta Kostaríka í lokaumferð E-riðils heimsmeistaramótsins í fótbolta í Katar í kvöld og þar með setur hann met.

Neuer  verður með þessu orðinn leikjahæsti markvörðurinn í sögu lokakeppni HM. Þetta er hans nítjándi leikur á stóra sviðinu og hann fer þar með fram úr Cláudio Taffarel frá Brasilíu og landa sínum Sepp Maier sem báðir vörðu mark þjóða sinna í 18 skipti á HM.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert