Það er miklu meira á leiðinni hjá Portúgal

Cristiano Ronaldo þaggar niður í nærstöddum í leik Suður-Kóreu og …
Cristiano Ronaldo þaggar niður í nærstöddum í leik Suður-Kóreu og Portúgal í gær. AFP/Yeon-je Jung

Cristiano Ronaldo segir á samfélagsmiðlum sínum að það sé miklu meira á leiðinni hjá liði Portúgals á heimsmeistaramóti karla í fótbolta í Katar.

Portúgal undirbýr sig nú af kappi fyrir leik gegn Sviss í 16-liða úrslitum keppninnar.

„Fyrstu tveimur markmiðum náð: Að komast áfram og að leiða riðilinn inn í 16-liða úrslitin. En það er miklu meira á leiðinni. Áfram Portúgal!“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert