Þetta eru gleðitár

Tilfinningarnar báru Heung-min Son ofurliði er hann brast í grát …
Tilfinningarnar báru Heung-min Son ofurliði er hann brast í grát af gleði eftir sigur Suður-Kóreu á Portúgal í lokaumferð H-riðils. AFP/Kirill Kudryavtsev

„Þetta eru gleðitár,“ sagði Son Heung-min, fyrirliði Suður-Kóreu, eftir dramatískan sigur liðsins á Portúgal sem tryggði sæti þess í 16-liða úrslitum heimsmeistaramóts karla í fótbolta í Katar.

„Biðin eftir staðfestingunni voru lengstu sex mínútur ævi minnar. Við höfum beðið lengi eftir þessu augnabliki en við trúðum allir að þetta væri mögulegt. Á köflum gat ég ekki gert mitt besta en liðsfélagar mínir hlupu þá í skarðið og ég er þeim þakklátur. Ég er stoltur af þessu liði.“

Biðin langa eftir staðfestingu þess að lið Suður-Kóreu væri komið …
Biðin langa eftir staðfestingu þess að lið Suður-Kóreu væri komið áfram í 16-liða úrslit. AFP/Kirill Kudryavtsev
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert