Neymar snýr aftur

Neymar er klár í slaginn.
Neymar er klár í slaginn. AFP/Guiseooe Cacace

Neymar er í byrjunarliði brasilíska landsliðsins í knattspyrnu sem mætir Suður-Kóreu í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í Katar í kvöld.

Neymar, sem er þrítugur, meiddist í fyrstu umferð riðlakeppninnar gegn Serbíu þar sem brasilíska liðið vann 2:0-sigur.

Þá er Danilo einnig í byrjunarliði brasilíska liðsins en sigurvegarinn úr einvíginu mætir Króatíu í 8-liða úrslitum keppninnar í Al Rayyan hinn 9. desember.

Neymar á að baki 122 A-landsleiki þar sem hann hefur skorað 75 mörk en leikurinn, sem hefst klukkan 19, verður í beinni textalýsingu á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert