Mbappé æfði ekki með franska liðinu

Kylian Mbappé fagnar marki gegn Póllandi í 16-liða úrslitum.
Kylian Mbappé fagnar marki gegn Póllandi í 16-liða úrslitum. AFP/Franck Fife

Kylian Mbappé, einn besti leikmaður HM í fótbolta í Katar til þessa, æfði ekki með franska liðinu í dag, vegna smávægilegra meiðsla.

Mbappé æfði einn síns liðs, en sóknarmaðurinn verður væntanlega klár í slaginn gegn Englandi í átta liða úrslitum á laugardaginn kemur.

Franska stjarnan er markahæsti leikmaður mótsins til þessa með fimm mörk. Franska knattspyrnusambandið lét frá sér fara á samfélagsmiðlum af þessu tilefni að Mbappé væri í endurheimt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert