Sagður vera búinn að semja við Chelsea

Aleksandr Golovin.
Aleksandr Golovin. AFP

Rússneski landsliðsmaðurinn Aleksandr Golovin er búinn að semja við Chelsea að sögn Valeri Gazzajev, fyrrverandi þjálfara CSKA Moskva, en Golivin leikur með CSKA Moskva.

Gazzajev segir að tilkynnt verði um félagaskiptin eftir HM og muni Chelsea greiða nálægt 30 milljónum evra fyrir miðjumanninn.

Golovin er 22 ára gamall og hefur átt góðu gengi að fagna með Rússum á heimsmeistaramótinu en Rússar eru öllum á óvart komnir í átta liða úrslitin og mæta Króötum á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert