Túnisbúarnir Ismail Boualloucha og Ramzi Khenissi dæma viðureign Íslands og Króatíu í B-riðli heimsmeistaramótsins í handknattleik síðar í dag í Ólympíuhöllinni í München. Um er að ræða fyrstu viðureign beggja þjóða á mótinu sem hófst í gær með öruggum sigrum Dana og Þjóðverja á Sílebúum og Kóreumönnum í Kaupmannahöfn og Berlín.
Boualloucha og Khenissi dæmdu einnig á heimsmeistaramóti karla fyrir tveimur árum auk þess sem þeir voru dómarar á HM kvenna 2015.
Viðureign Íslands og Króatíu hefst klukkan 17 og verður í beinni textalýsingu á mbl.is.