Twitter fór á hliðina eftir leik

Aron Pálmarsson á milli þeirra Velko Markoski og Stojanche Stoilov …
Aron Pálmarsson á milli þeirra Velko Markoski og Stojanche Stoilov í leiknum gegn Makedóníu í dag. AFP

Íslendingar voru duglegir að láta skoðanir sínar í ljós á samfélagsmiðlum eftir að Ísland tryggði sér sæti í milliriðlum heimsmeistaramótsins í handknattleik eftir magnaðan sigur á Makedóníu, 24:22.

Íslenska liðinu dugði jafntefli til þess að komast áfram og var undir lengi vel framan af, meðal annars 13:11 í hálfleik. Í síðari hálfleik var íslenska liðið með mun meira á tankinum og sigldi frækilegum sigri heim.

Hér að neðan má sjá brot af umræðunni á Twitter eftir leikinn, en óhætt er að segja að landsmenn hafi verið kátir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert