Hansen markahæstur - Arnór í 4. sæti

Mikkel Hansen.
Mikkel Hansen. AFP

Danska stórskyttan Mikkel Hansen er markahæsti leikmaðurinn á heimsmeistaramótinu í handknattleik.

Hansen skoraði 7 mörk í sigri Dana gegn Ungverjum í gær og með sigrinum stigu Danir stórt skref í átt að undanúrslitunum.

Arnór Þór Gunnarsson er í 4.-7. sæti yfir markahæstu leikmenn á HM með 37 mörk en hann meiddist í leiknum gegn Þjóðverjum í gærkvöld og spilar ekki með gegn Frökkum í kvöld.

Markahæstu leikmenn:

42 - Mikkel Hansen, Danmörku
39 - Kiril Lazarov, Makedóníu
38 - Youssef Ben Ali, Egyptalandi
37 - Arnór Þór Gunnarsson, Íslandi
37 - Erwin Feuchtmann, Síle
37 - Ferrán Solé, Spáni
36 - Uwe Gensheimer, Þýskalandi

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert