Makedónía í 15. sæti

Kiril Lazarov skoraði níu mörk gegn Síle í leik um15. …
Kiril Lazarov skoraði níu mörk gegn Síle í leik um15. sæti HM. AFP

Makedónía lauk keppni á HM í handknattleik í dag þegar liðið vann 32:30-sigur gegn Síle í Köln í leik um 15. sæti mótsins. Jafnræði var með liðunum framan af og var staðan jöfn í hálfleik, 16:16.

Makedónar mættu ákveðnari til leiks í seinni hálfleik og unnu að lokum tveggja marka sigur en Síle lýkur keppni í 16. sæti. Kiri Lazarov var markahæstur í liði Makedóníu með 9 mörk og þar á eftir kom Dejan Manaskov með 8 mörk.

Hjá Síle var það Erwin Feuchtmann sem skoraði mest allra eða níu mörk og Rodrigo Salinas skoraði 8 mörk úr ellefu skotum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert