Ólafur fyrirliði gegn Frökkum

Ólafur Gústafsson verður fyrirliði íslenska landsliðsins í leiknum við heimsmeistara …
Ólafur Gústafsson verður fyrirliði íslenska landsliðsins í leiknum við heimsmeistara Frakka á HM í kvöld. AFP

Ólafur Gústafsson verður fyrirliði íslenska landsliðsins í handknattleik í viðureigninni við Frakka í milliriðlakeppni HM í handknattleik í Lanxess-Arena í kvöld. Ólafur tekur við fyrirliðastöðunni af Aroni Pálmarssyni sem meiddist í leiknum við Þjóðverja í gærkvöld og verður ekki meira með íslenska liðinu í keppninni.

Þetta er í fyrsta sinn sem Ólafur er fyrirliði A-landsliðsins í handknattleik. Hann leikur í kvöld sinn 38. landsleik.

Leikur Íslands og Frakklands hefst klukkan 19.30 og verður í beinni textalýsingu á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert