Íþróttir
|
HM í handbolta
| mbl
| 21.1.2019
| 21:02
| Uppfært
22.1.2019
5:21
Leikstjórnandi Þjóðverja úr leik
Martin Strobel, leikstjórnandi þýska landsliðsins í handknattleik, meiddist á hné snemma leiks Þýskalands og Króatíu í milliriðlakeppni HM í Lanxess-Arena. Fullyrt er að hann verði ekki meira með þýska liðinu á mótinu.
Strobel meiddist á hné og var fluttur í börum af leikvelli. Þýskir fréttamiðlar telja sig hafa vissu fyrir að liðband hafi slitnað eða skaddast illa. Sé svo er Strobel ekki aðeins úr leik á HM. Hann gæti orðið frá um nokkurt skeið eftir að keppni hefst á ný í þýska handboltanum. Strobel er samherji Odds Gretarssonar hjá Balingen í þýsku 2. deildinni.