Hansen bestur og markahæstur

Mikkel Hansen.
Mikkel Hansen. AFP

Það kom fáum á óvart að Daninn Mikkel Hansen var valinn besti leikmaðurinn á heimsmeistaramótinu í handknattleik sem lauk í Herning í kvöld þar sem Danir unnu heimsmeistaratitilinn í fyrsta skipti.

Hansen var frábær á mótinu og endaði sem markakóngur en hann skoraði 72 mörk í 10 leikjum Dana á mótinu.

Úrvalslið mótsins lítur þannig út:

Besti leikmaðurinn: Mikkel Hansen, Danmörku

Vinstra horn: Magnus Jøndal, Noregi

Skytta vinstra megin: Sander Sagosen, Noregi

Leikstjórnandi: Rasmus Lauge, Danmörku

Skytta hægra megin: Fabian Wiede, Þýskalandi

Hægra horn: Ferrán Sole Salá, Spáni

Línumaður: Bjarte Myrhol, Noregi

Markvörður: Niklas Landin, Danmörku

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert