Guðmundur sendir Dönum góðar kveðjur

Guðmundur Þórður Guðmundsson.
Guðmundur Þórður Guðmundsson. AFP

Guðmundur Þórður Guðmundsson, þjálfari íslenska landsliðsins í handbolta og fyrrverandi þjálfari danska landsliðsins, sendir nýkrýndum heimsmeisturum Dana góðar kveðjur á Facebook-síðu sinni.

„Ég óska Nicolaj Jacobsen, öllum leikmönnum og forráðamönnum danska landsliðsins innilega til hamingju með frábært heimsmeistaramót 2019. Danska landsliðið spilaði frábæran handbolta í vörn og sókn allt mótið og hefur unnið þann stóra titil að verða heimsmeistari 2019,“ skrifar Guðmundur Þórður.

Guðmundur stýrði danska landsliðinu frá 2014-2017 og undir hans stjórn urðu Danir ólympíumeistarar í Ríó 2016.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert