Viggó útnefndur maður leiksins

Viggó Kristjánsson tekur við viðurkenningunni.
Viggó Kristjánsson tekur við viðurkenningunni. AFP

Viggó Kristjánsson var valinn maður leiksins í viðureign Íslands og Marokkó af mótshöldurum á heimsmeistaramótinu í handknattleik í Egyptalandi.

Viggó skoraði sex mörk fyrir íslenska liðið í kvöld og var markahæstur ásamt Ólafi Guðmundssyni. Hann fékk hefðbundna viðurkenningu inni á vellinum í leikslok.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert