Þrjár breytingar á landsliðshópnum

Kristján Örn Kristjánsson og Kári Kristján Kristjánsson eru báðir í …
Kristján Örn Kristjánsson og Kári Kristján Kristjánsson eru báðir í leikmannahóp dagsins. mbl.is/Kristinn Magnússon

Kári Kristján Kristjánsson, Ómar Ingi Magnússon og Viktor Gísli Hallgrímsson koma inn í íslenska landsliðshópinn sem mætir Frakklandi í milliriðli 3 á HM í Egyptalandi í borginni 6. október í dag.

Þeir Kári Kristján, Ómar Ingi og Viktor Gísli koma inn fyrir þá Alexander Petersson, Arnór Þór Gunnarsson og Ágúst Elí Björgvinsson.

Arnór Þór og Ágúst Elí verða báðir í stúkunni gegn Frökkum en Alexander Petersson er farinn heim til Þýskalands eins og HSÍ tilkynnti í gær.

Leikurinn hefst klukkan 17 að íslenskum tíma. Ísland er með tvö stig í fjórða sæti milliriðilsins en Frakkar eru í efsta sætinu með sex stig.

Landsliðshópur Íslands:

Björgvin Páll Gústavsson Haukum 234/16
Viktor Gísli Hallgrímsson, GOG 20/1
Bjarki Már Elísson, Lemgo 77/204
Oddur Gretarsson, Balingen-Weilstetten 24/35
Ólafur Andrés Guðmundsson, IFK Kristianstad 129/250
Magnús Óli Magnússon, Val 10/6
Elvar Örn Jónsson, Skjern 41/110
Gísli Þorgeir Kristjánsson, SC Magdeburg 30/45
Kristján Örn Kristjánsson, PAUC-Aix, 10/17
Ómar Ingi Magnússon, SC Magdeburg 51/135
Viggó Kristjánsson, Stuttgart 17/37
Sigvaldi Björn Guðjónsson, Vive Kielce 34/66
Arnar Freyr Arnarsson, MT Melsungen 87/72
Elliði Snær Viðarsson, Gummersbach 11/10
Kári Kristján Kristjánsson, ÍBV 146/178
Ýmir Örn Gíslason, Rhein-Neckar Löwen 48/22

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert