Synir Íslands: Gísli Þorgeir Kristjánsson

Í sjötta þætti af Sonum Íslands heimsækjum við handbolta- og landsliðsmanninn Gísla Þorgeir Kristjánsson, leikmann Magdeburg í Þýskalandi.

Gísli Þorgeir, sem er 23 ára gamall, gekk til liðs við Magdeburg í janúar 2020 eftir eitt og hálft tímabil í herbúðum þýska stórliðsins Kiel.

Miðjumaðurinn er uppalinn í FH en hélt út í atvinnumennsku árið 2018 þegar hann samdi við Kiel.

Hann varð Þýskalandsmeistari með Magdeburg á síðustu leiktíð og og þá hefur hann tvívegis orðið heimsmeistari félagsliða með þýska liðinu.

Gísli Þorgeir lék sinn fyrsta A-landsleik gegn Svíþjóð árið 2017 en alls á hann að baki 45 landsleiki þar sem hann hefur skorað 93 mörk. Heimsmeistarmótið í Svíþjóð og Póllandi sem nú stendur yfir er fjórða stórmót Gísla Þorgeirs.

Hægt er að horfa á þáttinn um Gísli Þorgeir í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan eða á vefsíðu þáttanna, mbl.is/sport/synir-islands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert