Noregur tryggði sér í kvöld sæti í leiknum um fimmta sætið á HM 2023 í handknattleik karla með því að hafa betur gegn Ungverjalandi, 33:25, í leik um 5. til 8. sæti mótsins.
Norðmenn voru skrefi framar í fyrir hálfleik og náðu mest fjögurra marka forystu, 16:12, undir lok hans en staðan var 16:13 í hálfleik.
Í síðari hálfleik byrjuðu Ungverjar af miklum krafti og minnkuðu muninn niður í eitt mark, 18:17.
Eftir það tóku Norðmenn hins vegar við sér að nýju og juku forskotið jafnt og þétt. Mest varð það átta mörk og niðurstaðan að lokum sanngjarn átta marka sigur Noregs.
Sander Sagosen var markahæstur í liði Noregs með sjö mörk.
Markahæstir hjá Ungverjalandi var Máté Lékai með sex mörk og skammt undan var Richárd Bodó með fimm mörk.
Noregur mætir lærisveinum Alfreðs Gíslasonar í Þýskalandi í leiknum um fimmta sætið á HM á sunnudaginn.