Danmörk tryggði sér í kvöld sæti í úrslitaleik HM 2025 í handbolta karla með því að leggja Portúgal örugglega að velli, 40:27, í undanúrslitum í Ósló í Noregi.
Danir hafa orðið heimsmeistarar í þrjú síðustu skipti og eru nú komnir í úrslitaleik HM í fjórða skiptið í röð.
Danmörk er eina liðið sem hefur unnið heimsmeistaramót þrisvar í röð og freistar þess nú að gera það fjórum sinnum. Í úrslitum mæta Danir liði Króatíu, sem Dagur Sigurðsson þjálfar.
Í kvöld var Danmörk með yfirhöndina allan tímann, komst mest fjórum mörkum yfir í fyrri hálfleik og sá var munurinn að loknum fyrri hálfleik, 20:16.
Í síðari hálfleik hertu Danir tökin og komust fljótt sex mörkum yfir í stöðunni 24:18. Áfram herjaði Danmörk á Portúgal og munurinn var orðinn tíu mörk, 30:20, þegar síðari hálfleikur var hálfnaður.
Ljóst var að um ofurefli væri að etja fyrir Portúgal. Þegar skammt var eftir komst Danmörk 14 mörkum yfir, 39:25, og vann að lokum 13 marka sigur.
Mathias Gidsel fór einu sinni sem áður fyrir Danmörku og var markahæstur í leiknum með níu mörk. Rasmus Lauge var skammt undan með átta mörk.
António Areia var markahæstur hjá Portúgal með fimm mörk. Victor Iturriza bætti við fjórum mörkum.