Hafa gefið tvo leiki vegna manneklu

Styrmir Friðriksson, Viktor Kristjónsson, Viktor Svavarsson og félagar í SR …
Styrmir Friðriksson, Viktor Kristjónsson, Viktor Svavarsson og félagar í SR hafa verið í mannavandræðum. Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason.

SA hefur verið dæmdur 5:0-sigur gegn SR í Hertz-deild karla í íshokkí, en liðin áttu að mætast á Akureyri í kvöld. Þetta er annar leikurinn í röð sem SR hefur þurft að gefa.

SR átti að mæta Birninum á föstudagskvöld en skömmu fyrir leik var ljóst að liðið gæti ekki mætt til leiks og því var Birninum dæmdur 5:0-sigur í þeim leik. Í kjölfarið var SA dæmdur sigur í leiknum sem fram átti að fara í kvöld.

Meiðsli eru að hrjá leikmenn SR, auk þess sem erlendir leikmenn liðsins ku hafa fengið leyfi til þess að snúa til síns heima yfir hátíðirnar. Næsti leikur liðsins er gegn Esju 5. janúar og er reiknað með að hægt verði að smala í hóp fyrir þann leik.

SR er án stiga í deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert