Vísa ummælum Gauta á bug - „Dapurlegt“

Snorri Gunnar Sigurðsson dæmdi leikinn.
Snorri Gunnar Sigurðsson dæmdi leikinn. Ljósmynd/Björninn

Stjórn íshokkídeildar Bjarnarins hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna ummæla Gauta Þormóðssonar, þjálfara Esju í samtali við mbl.is síðastliðinn föstudag. Gauti sakaði þá Snorra Gunnar Sigurðsson, dómara, um að vísvitandi dæma gegn sínu lið er Esja og Björninn mættust í Hertz-deildinni síðastliðinn þriðjudag. 

Íshokkídeild Bjarnarins vísar ummælum Gauta á bug og kemur Snorra til varnar. 

Yfirlýsing frá stjórn íshokkídeildar Bjarnarins:

Það eru nú ekki fallegar jólakveðjurnar sem hann Snorri Gunnar Sigurðsson fær frá Gauta Þormóðssyni og Esjumönnum núna rétt fyrir hátíðirnar. Þar er hann sakaður um að hafa haft áhrif á leikinn með þeim hætti að Björninn hafi hagnast að.

Snorri er jafnfram einn af stofnendum Bjarnarins og starfaði mikið að uppbyggingu klúbbsins. Einnig hefur Snorri mikið komið að störfum Íshokkísambands Íslands og lagt lið á mörgum stöðum í þágu íshokkí á Íslandi. Núna síðustu ár hefur hann lagt lið með því að dæma leiki sambandsins sem hefur barist við dómaraskort í gegnum árin. Þetta óeigingjarna starf hans í þágu félagins og sambandsins er algjörlega ómetanlegt í uppbyggingu á þessu litla sporti hér á landi.

Ef við komum aftur að þessum leik þá er ljóst að Snorri tekur alls ekki ákvörðun um að senda Kolar af velli. Aðstoðardómari sér atvikið og tilkynnir Snorra að Kolar hafi vísvitandi fellt hann á svellinu. Í kjölfarið af þessu sendir Snorri leikmanninn af svellinu. Vert er að taka fram að ekki er hægt að segja að hvorki Snorri né Kolar hafi hlegið að atvikinu eins og Gauti ýjar að þar sem Snorri meiðist við fallið. Varðandi hvort að atvikið hafi verið slys eða ekki þá lítur því miður út fyrir að ekki hafi verið um slys að ræða eins og upptaka af atvikinu sýnir þegar leikmaður skyndilega bregður kylfu fyrir skauta dómara með þeim hætti að hann fellur, einnig sést vel að aðstoðardómari horfir á atvikið meðan það gerist. 

Hér að neðan má sjá atvikið en það hefst eftir 39 sekúndur. Í kjölfarið ætlar Kolar að veitast að Snorra, en liðsfélagar og aðrir dómarar leiksins koma í veg fyrir að það takist. Í lokin má sjá Esjumenn ganga af velli, rúmri mínútu áður en leikurinn klárast. 


Það er rétt hjá Gauta að Snorri er harður Bjarnarmaður og er viðurkenndur hjá Birninum sem einn af mikilvægustu aðilum í sögu klúbbsins. Hann aftur á móti er líka harður stuðningsmaður íshokkí á Íslandi og lætur þ.a.l. ekki tengsl sín við dómgæslu hafa áhrif á sínar ákvarðanir.

Dómarar gera aftur á móti mistök alveg eins og leikmenn og aðrir sem standa að leiknum. Snorri gerir ekkert fleiri mistök en aðrir dómarar í deildinni. Aftur á móti var leikurinn á móti Esju í heildina bara mjög vel dæmdur. Já einhver mistök voru gerð en þau bitnuðu á báðum liðum, þannig er það bara. Aganefnd IHI hefur þegar úrskurðað um málið, í aganefnd situr m.a. formaður aganefndar sem er fulltrúi Esju ásamt varamanni sem er sem er fulltrúi Esju og sátu báðir fundinn, Þessari niðurstöðu lútum við, virðum og styðjum.

Dapurlegt svo ekki sé meira sagt

Esjan ákveður þegar rúm mínúta er eftir af leiknum að klára ekki leikinn. Það er ákvörðun Gauta. Það að Gauti kjósi að kenna Snorra um þessa ákvörðun sína og í leiðinni að gera hann að umdeildum aðila í kringum þetta mál er dapurlegt svo ekki sé meira sagt.

Þann 22. nóvember birtist síðast viðtal við Gauta á mbl.is með fyrirsögninni „Ekki edrú þegar þeir settu hana saman“, þar ræðst Gauti að þeim aðilum sem sátu í mótanefnd Íshokkísambandsins í fjölmiðlum.

Mótaskráin okkar, alveg eins og dómaramál í íshokkíinu, er ekki fullkomin. Að þeim málum eins og mörgum öðrum innan hreyfingarinnar koma aðilar sem vilja hreyfingunni vel. Það er sorglegt þegar þessir aðilar fá svona kveðjur á opinberum vettvangi.

Eitt er alveg á hreinu, Snorri Gunnar Sigurðsson nýtur 150% stuðning stjórnar Bjarnarins og þó víðar væri leitað. Snorri er félaginu gríðarlega mikilvægur og við erum stolt af aðkomu hans að þessu sporti og hlökkum til að halda áfram að njóta hans krafta.

Hafi menn hug á að leita að „umdeildum“ aðila í kringum íshokkí skorum við á menn að leita annars staðar en hjá Snorra.

Að lokum viljum við benda á að næsti leikur Bjarnarins er aftur heimaleikur við títtnefnt lið Esju. Leikurinn fer fram þann 9. janúar á nýju ári kl. 19:45 og hvetjum við alla til að mæta og horfa á skemmtilegt íshokkí.

Björninn óskar öllum friðsælla og gleðilegra jóla.

Stjórn Íshokkídeildar Bjarnarins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert