SA ekki í vandræðum með SR

SA vann öruggan sigur á SR.
SA vann öruggan sigur á SR. Ljósmynd/Thorir O. Tryggvason

SA vann gríðarlega sannfærandi 8:1-sigur á SR er liðin mættust í Hertz-deild karla í íshokkí á Akureyri í kvöld. Jafnræði var með liðunum í 1. leikhluta og staðan eftir hann 2:1. SA tók öll völd á svellinu eftir hann og tryggði sér öruggan sigur.

Jordan Steger kom SA yfir snemma leiks en Bjarki Jóhannesson jafnaði fyrir SR skömmu síðar. Jussi Sipponen skoraði fyrsta af þremur mörkum sínum í leiknum fyrir hlé sá til þess að staðan væri 2:1. Sipponen skoraði bæði mörk 2. leikhluta og var staðan fyrir síðasta leikhlutann því 4:1. 

Bart Moran, Rúnar Rúnarsson og Kristján Árnason skoruðu allir í 3. leikhluta og risasigur norðmanmanna varð raunin. SA er í 2. sæti deildarinnar með 42 stig, tveimur minna en topplið Esju. SR er á botninum, án stiga. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert