Bandaríska kvennalandsliðið í íshokkí er komið í úrslitin um gullverðlaunin á Vetrarólympíuleikunum í Pyeonchang í Suður-Kóreu eftir nóttina.
Bandaríska liðið skellti Finnum, 5:0, í fyrri undanúrslitaleiknum í nótt þar sem Dani Cameranesi skoraði tvö af mörkum Bandaríkjanna.
Bandaríkin mætir fjórföldum ólympíumeisturum Kanada eða liði Rússlands í úrslitaleiknum.