Grátlegt tap í fyrsta leik á HM

Íslenska liðið mátti þola svekkjandi tap.
Íslenska liðið mátti þola svekkjandi tap. Ljósmynd/ÍHÍ

Íslenska kvennalandsliðið í íshokkíi mátti þola grátlegt 2:1-tap gegn Spánverjum í fyrsta leik sínum í B-riðli í 2. deild heimsmeistaramótsins sem fram fer í Valdemoro á Spáni. Sigurmarkið kom 49 sekúndum fyrir leikslok.

Silvía Björgvinsdóttir, leikmaður Ynja á Akureyri, kom Íslandi yfir eftir rúmlega sex mínútna leik og reyndist það eina mark 1. leikhlutans. Spánverjar jöfnuðu í 2. leikhluta og skoruðu svo sigurmarkið í blálokin. 

Ísland mætir Nýja-Sjálandi í öðrum leik sínum á morgun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert