Nær SA að hefna sín?

SA og Esja eigast við í fyrsta leik úrslitaeinvígisins í …
SA og Esja eigast við í fyrsta leik úrslitaeinvígisins í kvöld. Ljósmynd/Thorir O. Tryggvason.

Fyrsti leikur deildarmeistara SA og Íslandsmeistara Esju í úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitil karla í íhokkí fer fram í Skautahöll Akureyrar kl. 19:30 í kvöld. Liðið sem fyrr vinnur þrjá leiki verður Íslandsmeistari.

SA varð deildarmeistari með því að næla í 60 stig í Hertz-deildinni á meðan Esja varð í 2. sæti með 50 stig. Esja vann hins vegar einvígi liðanna um Íslandsmeistaratitilinn á síðasta ári. Mbl.is verður á Akureyri í kvöld og færir ykkur það helsta í beinni textalýsingu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert