Heimamenn skoruðu sjö

Giovanni Vogelaar skoraði tvö.
Giovanni Vogelaar skoraði tvö. Ljósmynd/iihf.com

Hollenska landsliðið í íshokkí fer vel af stað á heimsmeistaramótinu á heimavelli, en A-riðill 2. deildarinnar fer fram í Tilburg þar í landi. Holland vann þægilegan 7:0-sigur á Kína í kvöld. 

Ivy van den Heuvel og Giovanni Vogelaar skoruð tvö mörk hvor fyrir Holland sem mætir Íslandi annað kvöld. Ísland tapaði fyrr í dag fyrir Áströlum, 3:0. 

Í hinum leik dagsins í riðliðinum hafði Serbía betur gegn Belgíu, 4:1. Petar Novikovic skoraði tvö mörk fyrir Serba. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert