Capitals einum sigri frá Stanley-bikarnum

Leikmenn Washington Capitals fagna einu af mörkum sínum í nótt.
Leikmenn Washington Capitals fagna einu af mörkum sínum í nótt. AFP

Washingt­on Capitals er einum sigri frá því að tryggja Stanley-bik­ar­inn en liðið er komið í 3:1 í baráttunni um bikarinn í NHL-deildinni í íshokkí.

Washingt­on Capitals hrósaði 6:2 sigri gegn Las Vegas Golden Knights í fjórða úrslitaleiknum í nótt og getur á fimmtudaginn unnið Stanley-bikarinn í fyrsta sinn í 43 ára sögu félagsins þegar liðin eigast við í Las Vegas.

T. J. Oshie, John Carlson, Brett Conolly, Michal Kempný, Devante Smith-Pelly og Tom Wilson skoruðu mörk Washingt­on Capitals en Rússinn Evgeny Kuznetsov gaf fjórar stoðsendingar í leiknum. James Neal og Reilly Smith settu mörkin fyrir Las Vegas Golden Knights.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert