Fjölnir með skautadeildir

Bjarnarmenn eru á leið yfir í Fjölni.
Bjarnarmenn eru á leið yfir í Fjölni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ákveðið hefur verið að öll starfsemi Skautafélagsins Bjarnarins verði lögð inn í Fjölni frá og með næsta mánudegi. Félögin hafa bæði haft bækistöðvar sínar í Grafarvogi.

Á framhaldsaðalfundi Bjarnarins í fyrradag var samþykkt með rúmlega 80% atkvæða að starfsemi félagsins skyldi yfirtekin af Fjölni.

Þar með verða stofnaðar tvær nýjar deildir innan Fjölnis; hokkídeild og listskautadeild. Núverandi stjórnir þessara deilda hjá Birninum verða stjórnir nýju deildanna hjá Fjölni, að minnsta kosti fram að næsta aðalfundi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert