Robbie tryggði SR annan sigur

Robbie Sigurðsson í landsleik. Hann skoraði sigurmark SR í gærkvöld.
Robbie Sigurðsson í landsleik. Hann skoraði sigurmark SR í gærkvöld. Ljósmynd/Stefán Örn

Skautafélag Reykjavíkur vann í gærkvöld sinn annan sigur á Birninum á nýhöfnu tímabili í Hertz-deild karla í íshokkí þegar liðin mættust í Egilshöllinni. Lokatölur í hörkuleik urðu 4:3 fyrir SR.

Kristján Kristinsson kom Birninum yfir, Andri Sverrisson jafnaði fyrir SR en Úlfar Andrésson svaraði og Björninn var 2:1 yfir eftir fyrsta leikhluta. Edmund Induss kom síðan Bjarnarmönnum í vænlegri stöðu um miðjan annan leikhluta, 3:1.

SR hafði hins vegar jafnað metin áður en leikhlutinn var úti, Petr Kubos skoraði fyrst og síðan Miloslav Racansky.

Það var síðan Robbie Sigurðsson sem skoraði sigurmark SR þegar hálf önnur mínúta var til leiksloka.

SR er þá komið með 6 stig eftir þrjá fyrstu leiki sína á mótinu. SA Víkingar eru með 3 stig eftir aðeins einn leik en Björninn hefur tapað báðum sínum leikjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert