„Við ætlum okkur alla leið í ár“

Sölvi Freyr Atlason
Sölvi Freyr Atlason Ljósmynd/Andrés Arnar

Íshokkísamband Íslands tekur að sér gestgjafahlutverkið í 3. deild heimsmeistarakeppni karla skipað leikmönnum 20 ára og yngri. Deildin verður spiluð í Skautahöllinni í Laugardal 14.-20. janúar næstkomandi.

Ísland er í riðli með Ástralíu, Taívan og Tyrklandi og verður fyrsti leikur Íslendinga gegn Áströlum mánudaginn 14. janúar.

„Verður maður ekki alltaf að vera bjartsýnn?“ spurði landsliðsmaðurinn Sölvi Freyr Atlason þegar Morgunblaðið tók púlsinn á honum í gær. Hann segist telja möguleika Íslands góða en liðið sem vinnur deildina fer upp og leikur í 2. deild HM á næsta ári. Átta lið munu keppa í tveimur riðlum og að þeim leikjum loknum fara fram undanúrslit og úrslitaleikur, ásamt leikjum um sæti fimm til átta, en mótinu lýkur á sunnudagskvöldinu 20. janúar. Í B-riðli keppninnar eru Búlgaría, Suður-Afríka, Kína og Nýja-Sjáland.

Lítið má út af bregða ef vinna á mótið og kallar það á að spila fimm leiki á sjö dögum. „Já, þetta verður mikið álag og við höfum undirbúið okkur mjög vel. Í svona móti er best að spila á þremur til fjórum línum til að dreifa álaginu á milli leikmanna svo menn verði ekki of þreyttir. Við erum með þrjár mjög sterkar línur að mínu mati og í fjórðu línunni eru líkamlega sterkir strákar,“ sagði Sölvi.

Nánar er rætt við Sölva og fjallað um mótið í íþróttablaði Morgunblaðsins sem kom út í morgun.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert