Gunnlaugur ráðinn þjálfari SR

Gunnlaugur Thoroddsen.
Gunnlaugur Thoroddsen. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Gunnlaugur Thoroddsen hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs Skautafélags Reykjavíkur í íshokkí.

Gunnlaugur, sem er uppalinn SR-ingur, hefur mikla reynslu af þjálfun. Hann hefur meðal annars þjálfað yngri flokka hjá SR og var þjálfari karlaliðsins í sex ár, síðast tímabilið 2014-15 en þá varð SR deildarmeistari undir hans stjórn.

Gunnlaugur þjálfaði lið Esju tímabilið 2016-17 og gerði liðið bæði að deildar- og Íslandsmeisturum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert