Vladimir Kolek og Sami Lehtinen, landsliðsþjálfarar karla í íshokkíi, hafa valið lokahópinn sem tekur þátt í undankeppni Ólympíuleikanna 2022 í Rúmeníu 12.-15. desember 2019.
Þátttökuþjóðir auk Íslands eru Rúmenía, Ísrael og Kirgistan. Sigurvegarar riðilsins taka þátt í þriðju umferð undankeppninnar í febrúar á næsta ári.
Fyrsti leikur Íslands er gegn Kirgistan fimmtudaginn 12. desember klukkan 13, annar leikurinn gegn Ísrael er daginn eftir á sama tíma og er lokaleikurinn gegn Rúmeníu klukkan 17 næstkomandi sunnudag.
Allir leikir undankeppninnar verða í beinni útsendingu á streymisrás Alþjóðaíshokkísambandsins og má finna allar upplýsingar um liðin og keppnina hér.
Landslið Íslands í undankeppni Ólympíuleikanna 2022:
Ingvar Jónsson er fyrirliði og Robbie Sigurdsson og Róbert Freyr Pálsson aðstoðarfyrirliðar.
Liðsstjóri Sigurður Sveinn Sigurðsson
Tækjastjóri Leifur Ólafsson
Sjúkraþjálfari Emanuel Sanfilippo