Meistararnir skoruðu sjö

SA vann stórsigur á Reykjavík.
SA vann stórsigur á Reykjavík. Ljósmynd/Þórir

Skautafélag Akureyrar vann sannfærandi 7:2-heimasigur á Reykjavík er liðin mættust í sjöundu umferð Hertz-deildar kvenna í íshokkíi í dag. SA hefndi þar með fyrir 5:4-sigur Reykjavíkur í síðustu umferð. 

Inga Aradóttir og Gunnborg Jóhannsdóttur sáu til þess að SA var með 2:1-forskot eftir fyrstu lotuna, en Sigrún Árnadóttir jafnaði metin á milli þess sem þær komu SA yfir. Gunnborg skoraði sitt annað mark og kom SA í 3:1, snemma í 2. lotu, en Reykjavík neitaði að gefast upp. 

Guðrún Viðarsdóttir minnkaði muninn í 3:2 skömmu síðar en Eva Karvelsdóttir kom SA aftur tveimur mörkum yfir. Hilma Bergsdóttir og Sarah Smiley bættu við fimmta og sjötta marki SA, áður en Berglind Leifsdóttir skoraði sjöunda markið skömmu fyrir leikslok og þar við sat.

Liðin hafa mæst sjö sinnum á leiktíðinni og hefur SA unnið fimm leiki og Reykjavík tvo. Liðin mætast þrisvar í janúar, áður en úrslitakeppnin fer af stað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert