Emma Higgins, landsliðsmarkmaður Norður-Íra, hefur skipt yfir til Selfoss frá Grindavík. Higgins kom fyrst til Íslands árið 2010 og lék þá með Grindavík í tvö ár, áður en hún skipti yfir til KR þar sem hún lék í eitt ár.
Hún lék svo með Doncaster á Englandi í eitt ár, áður en leiðin lá aftur til Grindavíkur árið 2014, þar sem hún hefur leikið allar götur síðan. Higgins á 79 leiki með landsliði Norður-Íra.
Alls hefur hún leikið 101 leik hér á landi, bæði í úrvals- og 1. deild. Selfoss hafnaði í 2. sæti í 1. deildinni á síðustu leiktíð og leikur því í Pepsi-deildinni í sumar.