Það höfðu ekki margir trú á Breiðabliki

Frá leik Breiðabliks og Fjölnis í kvöld.
Frá leik Breiðabliks og Fjölnis í kvöld. mbl.is/Árni Sæberg

Sævaldur Bjarnason þjálfari Breiðabliks var niðurlútur eftir tapleikinn gegn Fjölni enda er Breiðablik fallið í 1. deild.

 „Við töpuðum leiknum á fráköstum og varnaleik fyrst og fremst.  Við áttum í erfiðleikum með varnarleikinn þeirraog  um leið eru þeir að skora allt of mörg stig á okkur.  Við héldum Hamri í 73 stigum í síðasta leik sem ég var sáttur með.  Við náðum bara ekki upp sömu stemmingu í varnarleiknum hjá okkur í kvöld og því fór sem fór“.  Spurður um framhaldið og hvort hann komi til með að halda áfram með liðið hafði Sævaldur þetta að segja:  „Ég var ráðinn í 7 vikur og það er einn leikur eftir, við byrjum á að klára hann  Það höfðu ekki margir trú á Breiðabliki þegar ég tók við, við unnum nú samt 3 leiki og náðum að halda í vonina með að bjarga okkur frá falli alveg þar til í kvöld.   Ég veit svo ekki með framhaldið, við verðum bara að sjá hvernig þau mál þróast”, sagði Sævaldur í samtali við mbl.is í kvöld.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert