Agúst tekur við Val

Ágúst Björgvinsson sypur vatn í kappleik með Hamri á nýliðinni …
Ágúst Björgvinsson sypur vatn í kappleik með Hamri á nýliðinni leiktíð. Hann hefur tekið við þjálfun kvennaliðs Vals í körfuknattleik. Ómar Óskarsson

Ágúst Björgvinsson var í dag ráðinn þjálfari kvennaliðs Vals í körfuknattleik. Valur vann sér fyrri skömmu sæti í úrvalsdeild kvenna á næstu leiktíð.

Ágúst hefur síðustu tvö árin þjálfað karla- og kvennalið Hamars og varð kvennaliðið deildarmeistari undir hans stjórn í vor. 

Ágúst mun einnig verða viðloðandi þjálfun yngri flokka Vals. Hann er uppalin hjá Val og þjálfaði á 13 ára tímabili nær alla flokka félagsins, segir í tikynningu á heimsíðu Vals í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert