Magnaður árangur hjá liðinu

KR-ingar fagna sigrinum í kvöld.
KR-ingar fagna sigrinum í kvöld. mbl.is/Árni Sæberg

„Það er frábær tilfinning að landa Íslandsmeistaratitlinum þriðja árið og þetta er alveg geggjað,“ sagði Darri Hilmarsson, leikmaður KR, í samtali við mbl.is eftir að liðið tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn þriðja árið í röð með sigri gegn Haukum í kvöld. 

„Það komu engir slæmir kaflar í þessum leik og leikur okkar var stöðugur og góður allan leikinn. Svo hertum við tökin í vörninni og sigldum þessum sigri í land. Það er ofboðslega erfitt að eiga við okkur þegar náum upp svona sterkum varnarleik,“ sagði Darri um lykilinn að sigri KR liðsins í kvöld.

„Það er búið að vera þema ársins að ná því að verða Íslandsmeistari þriðja árið í röð. Þetta er magnaður árangur að mínu mati og það er mikil áskorun að halda hungrinu til þess að fara alla leið þrjú ár í röð,“ sagði Darri enn fremur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert