Philadelphia næst hjá Kára

Kári Jónsson í leik gegn KR í úrslitakeppninni í vor.
Kári Jónsson í leik gegn KR í úrslitakeppninni í vor. mbl.is/Styrmir Kári

Kári Jónsson, körfuknattleiksmaðurinn ungi úr Haukum, er á leið til Philadelphia í Bandaríkjunum þar sem hann hefur nám við Drexel-háskóla á komandi hausti.

Kári, sem er 18 ára gamall og hefur verið í stóru hlutverki í liði Hauka þrátt fyrir ungan aldur, var að útskrifast sem stúdent og hefur fengið skólavist í Drexel, sem er með lið í 1. deild bandarísku háskólanna, nánar tiltekið í CAA-riðli 1. deildar en í honum eru tíu lið úr austurhluta Bandaríkjanna.

Óhætt er að segja að Kári sé á leiðinni í borg þar sem körfuboltahefðin er mikil en þar hafa spilað með NBA-liði Philadelphia 76ers kappar á boð við Wilt Chamberlain, Moses Malone, Charles Barkley, Julius Erving og Allen Iverson.

Drexel Dragons, hið nýja lið Kára, er miðlungslið í 1. deildinni og hefur ekki náð að komast í úrslitakeppnina um meistaratitilinn undanfarin tuttugu ár. Hann ætti því að eiga ágæta möguleika á að spila talsvert strax á fyrsta ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert