„Gerði lítið úr liðsfélögum sínum“

Carmen Tyson Thomas í leik með Njarðvík á tímabilinu.
Carmen Tyson Thomas í leik með Njarðvík á tímabilinu. Ljósmynd/Skúli B. Sigurðsson

Eins og mbl.is greindi frá í kvöld hefur Njarðvík ákveðið að rifta samningi Carmen Tyson-Thomas, stigahæsta leikmanns Dominos-deildar kvenna, og var í tilkynningu talað um óviðunandi ástand.

„Hún fór ekki eftir því plani inná vellinum sem lagt var upp með og fór sínar eigin leiðir í því.  Þú getur verið besti körfuknattleiksmaður heims og skorað körfur í öllum regnbogans litum en þegar þú álítur sjálfan þig stærri en klúbbinn þá er engin ómissandi,” sagði Agnar Gunnarsson, þjálfari Njarðvíkur, við karfan.is.

Hann segir að samstarfið hafi verið mjög erfitt og liðsfélagar hennar hafi kvartað yfir framferði hennar.

„Það var ekki lengur við unað. Samstarfið við hana hefur verið erfitt og þetta er uppsafnað.  Hún gerði lítið úr liðsfélögum sínum við skiptingar og hristi hausinn þegar þær voru að skjóta. Kvartanir vegna hennar komu úr öllum áttum og ég gerði þau mistök að hafa ekki tekið á þessu fyrr. En ég læri af þessu,” sagði Agnar við karfan.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert