Landsliðshópar Íslands – Helena verður með

Helena Sverrisdóttir í landsleik.
Helena Sverrisdóttir í landsleik. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Búið er að velja þá 12 leikmenn sem munu skipa landslið karla og kvenna í körfuknattleik á Smáþjóðaleikunum sem fara fram í San Marínó dagana 30. maí til 3. júní.

Í báðum landsliðunum í þessu verkefni fá leikmenn sem leika í háskólum í Bandaríkjunum tækifæri til að taka þátt, sem er gleðiefni, en margir efnilegir leikmenn, sem hafa verið í yngri landsliðum og A-liðum undanfarin ár, iðka þar nám og leika körfuknattleik um þessar mundir.

Landslið kvenna er skipuð öllum þeim bestu leikmönnum sem leikfærir eru og er Helena Sverrisdóttir þar á meðal, en hún eignaðist barn í vetur og var farin af stað með Haukum undir lok tímabilisns. Gunnhildur Gunnardóttir er barnshafandi og í fríi að þessu sinni. Ívar Ásgrímsson og aðstoðarþjálfarar hans, Bjarni Magnússon og Hildur Sigurðardóttir, völdu 12 leikmenn í þetta verkefni, en fleiri leikmenn hafa verið við æfingar með þeim að undanförnu sem munu fá tækifæri í vináttulandsleikjum á Írlandi um miðjan júní í kjölfar Smáþjóðaleika.

Ákvörðun var tekin af þjálfurum karlaliðsins að nýta þetta mót til að skoða yngri leikmenn og nota nokkra af þeim sem eru að fara á lokamót U20-landsliða í sumar spreyta sig í bland við aðra unga leikmenn. Einungis þrír leikmenn karlaliðsins eiga A-leiki að baki sem eru í hópnum að þessu sinni. Craig Pedersen landsliðsþjálfari valdi liðið með Finni Frey Stefánssyni og Arnari Guðjónsyni, aðstoðarþjálfurum sínum. Finnur Freyr mun stýra liðinu á leikunum en Finnur er einnig þjálfari U20 liðsins og Baldur Þór er hans aðstoðarþjálfari í báðum verkefnunum.

Eftirtaldir leikmenn skipa landslið Íslands á Smáþjóðaleikunum í San Marino 2017, en innan sviga er fjöldi landsleikja hjá þeim sem eiga leiki að baki:

Landslið kvenna
Berglind Gunnarsdóttir · Snæfell (8)
Birna Valgerður Benónýsdóttir · Keflavík
Emelía Ósk Gunnarsdóttir · Keflavík (2)
Hallveig Jónsdóttir · Valur (5)
Helena Sverrisdóttir · Haukar (61)
Hildur Björg Kjartansdóttir UTPA, USA / Snæfell (12)
Ingunn Embla Kristínardóttir · Grindavík (9)
Ragna Margrét Brynjarsdóttir · Stjarnan (37)
Sandra Lind Þrastardóttir · Horsholms 79’ers, DK (11)
Sara Rún Hinriksdóttir Canisius, USA / Keflavík (9)
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir · Skallagrímur (44)
Thelma Dís Ágústsdóttir · Keflavík (2)

Þjálfarar verða Ívar Ásgrímsson og Bjarni Magnússon. 

Landslið karla
Emil Karel Einarsson · Þór Þorlákshöfn 
Gunnar Ólafsson · St. Francis, USA / Keflavík
Jón Axel Guðmundsson · Davidson, USA / Grindavík
Kári Jónsson · Drexler, USA / Haukar
Kristinn Pálsson · Marist, USA
Kristófer Acox · KR (12)
Maciej Baginskij · Þór Þorlákshöfn
Matthías Orri Sigurðarson · ÍR
Ólafur Ólafsson · Grindavík (11)
Pétur Rúnar Birgisson · Tindastóll
Tryggvi Snær Hlinason · Þór Akureyri (8)
Þórir G. Þorbjarnarsson · KR

Þjálfarar verða Finnur Freyr Stefánsson og Baldur Þór Ragnarsson.

FIBA hefur útnefnt tvo dómara frá Íslandi til að dæma á Smáþjóðaleikunum en það eru okkar FIBA-dómarar, þeir Leifur S. Garðarsson og Sigmundur Már Herbertsson, sem fara fyrir hönd Íslands og dæma á leikunum.

Þetta eru 17. leikar smáríkja Evrópu sem haldnir eru annað hvert ár. Síðustu leikar voru haldnir hér á landi fyrir tveimur árum þar sem bæði liðin okkar höfnuðu í 2. sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert