Þjálfari Slóveníu óttaðist erfiðan andstæðing

Elvar Már Friðriksson sækir á Klemen Prepelic undir körfunni. Prepelic …
Elvar Már Friðriksson sækir á Klemen Prepelic undir körfunni. Prepelic sagði að meiri kraftur hefði verið í íslenska liðinu í upphafi, en sitt lið hefði síðan tekið við sér. Skúli B. Sigurðsson

„Þeir eru erfitt lið að spila við,“ sagði Igor Kokoskov, þjálfari slóvenska liðsins, á blaðamannafundi eftir leik Íslands og Slóveníu. Leiknum lauk með sigri Slóveníu, 102:75, og hafa Slóvenar unnið alla fjóra leiki sína í A-riðli. Íslendingar eru enn án sigurs.

„Í samanburði á hæfileikum höfum við betur, ég held að það sé ekki leyndarmál og allt í lagi að segja það, við vissum að það væru meiri hæfileikar í okkar liði, sagði Kokoskov. En hæfileikar skipta engu máli, Ísland spilar liðsbolta, léttleikandi, án stress, þeir spila saman, spila fast og eru hvattir áfram af sínum stuðningsmönnum. Ef maður tekur þá ekki alvarlega á maður langar 40 mínútur fram undan.“

Kokoskov sagði að hann hefði verið áhyggjufullur og dálítið taugaóstyrkur fyrir leikinn. „Við vorum of stífir,“ sagði hann. „Ég held að sálrænt hafi ég ekki undirbúið liðið nógu vel. Í fyrsta leikhluta kom fram að áhyggjur mínar voru ekki að ástæðulausu. Íslenska liðið er alltaf ágengt og keyrir alltaf á andstæðinginn og það þýðir ekki að gefa eftir í vörn á móti þeim.“

Kokoskov sagði að með því að herða vörnina í öðrum leikhluta hefði slóvenska liðinu tekist að loka á það íslenska í nokkrum sóknum og snúa leiknum við. „En þeir eru mjög erfitt lið, þeir voru lítilmagninn og við sigurstranglega liðið og það er ekki auðvelt að undirbúa liðið undir að taka slíkan leik alvarlega. Ég er því ánægður með þennan sigur.“

„Ég vil óska liðsfélögum mínum til hamingju með hvernig við fórum inn í leikinn,“ sagði Klemen Prepelic, leikmaður Slóvena, sem sat við hlið þjálfara sínum á fundinum. Hann skoraði  14 stig og tók fjögur fráköst í leiknum. „Sérstaklega í öðrum leikhluta, því sá fyrsti var ekki góður, þá náðum við ekki að setja jafnmikla orku í leikinn. Í öðrum náðum við hins vegar að skora 37 stig og þegar munurinn er orðinn 20 verður allt auðvelt.“

Slóvenar eru nú komnir í kjörstöðu til að vinna A-riðil og leika við Frakka á morgun. Kokoskov sagði að hann væri ekki að velta fyrir sér úrslitum í öðrum riðlum og hvort eitt sæti í riðlinum væri ákjósanlegra en annað. „Við einbeitum okkur bara að okkur,“ sagði Kokoskov.    

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert