12 þúsund tóku víkingaklappið (myndskeið)

Íslenskir áhorfendur hafa sett sterkan svip á EM í Finnlandi.
Íslenskir áhorfendur hafa sett sterkan svip á EM í Finnlandi. AFP

Það var mögnuð stund í Hartwall-höllinni í Helsinki í kvöld þegar Ísland og Finnland mættust í lokaleik A-riðils á Evópumótinu í körfuknattleik en þar höfðu heimamenn að lokum betur eftir hörkuleik.

Íslenskir áhorfendur hafa sett mikinn svip á mótið í Finnlandi og stutt vel við bakið á liðinu og það var ekkert öðruvísi í kvöld. Nú bættust hins vegar við mörg þúsund finnskir stuðningsmenn sem gerði stemninguna alveg hreint rafmagnaða.

Á milli leikhluta tóku allir stuðningsmennirnir sig saman, 12 þúsund talsins í höllinni, og tóku hið víðfræga víkingaklapp í einum kór og var útkoman ansi skemmtileg eins og sést í meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert