Tryggvi nýtti vel sitt stærsta tækifæri

Tryggvi Snær Hlinason, leikmaður Valencia á Spáni.
Tryggvi Snær Hlinason, leikmaður Valencia á Spáni. mbl.is/Kristinn Magnússon

Tryggvi Snær Hlinason fékk sitt stærsta tækifæri til þessa í Evrópudeildinni í körfuknattleik þegar lið hans Valencia tapaði fyrir Maccabi Tel Aviv í Ísrael í kvöld, 94:91.

Tryggvi spilaði í rúmar 14 mínútur, skoraði 8 stig og tók 2 fráköst auk þess sem hann varði tvö skot. Þetta er það mesta sem hann hefur spilað í Evrópudeildinni í vetur.

Illa hefur þó gengið hjá Valencia, en liðið hefur tapað átta leikjum og unnið aðeins þrjá.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert