Helena áfram í Evrópubikarnum

Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir. mbl.is/Hari

Helena Sverrisdóttir, landsliðskona í körfuknattleik, er komin áfram í 8-liða úrslit Evrópubikarsins, Eurocup, með liði sínu Good Angels Kosice frá Slóvakíu eftir að liðið vann sigur á Landes frá Frakklandi.

Good Angels tapaði fyrri viðureigninni 69:55 og þurfti því að vinna upp 14 stig í síðari leiknum á heimavelli í dag. Það tókst og gott betur því Good Angels vann 19 stiga sigur, 63:44.

Helena lék í rúmar 18 mínútur í leiknum þar sem hún skoraði 4 stig, tók eitt frákast og gaf eina stoðsendingu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert