KR nær í bandarískan leikmann

Jalen Jenkins hefur leikið sinn síðasta leik með KR.
Jalen Jenkins hefur leikið sinn síðasta leik með KR. mbl.is/Árni Sæberg

KR-ingar hafa sagt bandaríska körfuknattleiksmanninum Jalen Jenkins upp störfum og fengið í staðinn landa hans Brandon Penn í sínar raðir. Karfan.is greinir frá þessu.

Penn er 27 ára gamall, 2,03 sm á hæð og leikur sem framherji. Hann spilaði síðast með Plymouth Raiders á Englandi en lék áður í Grikklandi, Japan, Danmörku og í bandaríska háskólaboltanum.

Hann er gjaldgengur með KR í bikarúrslitaleiknum gegn Tindastóli á morgun en Zaccery Alen Carter er einnig í leikmannahópi KR-inga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert