Flautukarfa Ægis á Spáni - myndskeið

Ægir Þór Steinarsson.
Ægir Þór Steinarsson. mbl.is/Árni Sæberg

Landsliðsmaðurinn Ægir Þór Steinarsson var hetja liðsins Castelló í spænsku B-deildinni í körfuknattleik á dögunum er hann setti niður flautukörfu og tryggði liði sínu sigur gegn Araberri. Körfuna má sjá hér að neðan.

Lokatölur urðu 89:88 og var Ægir með stigahæstu mönnum í sínu liði, setti niður 14 stig, tók fimm fráköst og átti sjö stoðsendingar.

Ljóst er að mikið traust er lagt á Ægi hjá spænska liðinu en hann tók málin einfaldlega í sínar hendur á lokasekúndunum og afgreiddi leikinn.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert