Bandaríski körfuknattleiksmaðurinn Marques Oliver er á leið til liðs við Þór á Akureyri á nýjan leik og mun spila með liðinu á lokaspretti Dominos-deildar karla.
Oliver varð fyrir meiðslum og þar sem útlit var fyrir að hann yrði lengi frá keppni fengu Þórsarar landa hans Nino Johnson í sínar raðir í staðinn. Á vef Þórs segir að bataferli Olivers hafi gengið vonum framar og hann verði leikfær snemma í febrúar.
Þórsarar ætla því að vera með bæði Oliver og Johnson í sínum hópi, enda þótt aðeins annar þeirra megi vera inni á vellinum í einu.