Ari Gunnarsson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Skallagríms í körfuknattleik og tekur hann við þjálfun liðsins af Spánverjanum Richardo Gonzáles sem var rekinn frá störfum um síðustu helgi. Þetta kemur fram á Facebook-síðu Skallagríms.
Fyrsti leikur Skallagríms undir stjórn Ara verður gegn Snæfelli í Dominos-deildinni sem fram fer í Borgarnesi annað kvöld.